Mynd sem tengist textanum
Kirkjuþing unga fólksins 2026
14.08.2026

Kirkjuþing unga fólksins 2026

Biskup Íslands boðar til Kirkjuþings unga fólksins, sem haldið verður dagana 3.-4. október 2026 í Háteigskirkju.

Ingunn Björk Jónsdóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála á höfuðborgarsvæðinu, annast skipulag þingsins og er verkefnisstjóri þess.

Kirkjuþing unga fólksins er vettvangur þar sem ungt fólk innan þjóðkirkjunnar kemur saman til að ræða málefni kirkjunnar, deila hugmyndum og taka þátt í að móta framtíð hennar. Á þinginu eiga sæti 21 fulltrúar frá öllum prófastsdæmum.

Svæðisstjórar bera ábyrgð á tilnefningum og vali fulltrúa í samráði við presta, djákna og æskulýðsfulltrúa. Fulltrúar á kirkjuþingi unga fólksins eru valdir til tveggja ára. Í þeim prófastsdæmum þar sem svæðisstjóri er ekki starfandi skal prófastur sjá um tilnefningarnar.

Frestur til að skila inn tilnefningum er 10. september næstkomandi.

Tilkynningar um valda fulltrúa skulu berast Ingunni Björk Jónsdóttur, svæðisstjóra æskulýðsmála á höfuðborgarsvæðinu, á netfangið ingunn.bjork.jonsdottir@kirkjan.is eða í síma 662-6601.