
Ályktun kirkjuþings um Hóla í Hjaltadal 22. mars 2026
Frekari upplýsingarKirkjuþing þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing fer samkvæmt þjóðkirkjulögum með æðsta vald í málefnum kirkjunnar, þ.m.t. fjárstjórnarvald, nema lög kveði á um annað. Þingið setur reglur fyrir kirkjuna, ályktar um hin ýmsu mál, mótar stefnu í málaflokkum sem varða kirkjuna, fer með fjárstjórnarvaldið og lítur eftir starfi yfirstjórnar kirkjunnar. Forseti kirkjuþings 2022 - 2026 er Drífa Hjartardóttir. Kosning næsta forseta fyrir kjörtímabilið 2026 - 2030 fer fram á 68. kirkjuþingi þann 24. október 2026.
Þingmálaskrá 2026–2027
Mál lögð fram á 68. kirkjuþingi 2026–2027
| Nr. | Fyrirsögn | Staða máls |
|---|---|---|
1 | Skýrsla biskups Íslands og stjórnar Þjóðkirkjunnar 2025 - 2026 Lögð fram í október 2026 | |
2 | Tillaga til þingsályktunar um fjárhagsáætlun Þjóðkirkjunnar 2027 Lögð fram í október 2026 | |
3 | Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023 með síðari breytingum Vestfjarðaprófastsdæmi tilheyri Hólaumdæmi í stað Skálholtsumdæmis | |
4 | Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023, með síðari breytingum Vesturlandsprófastsdæmi; Tvær sóknir í Staðastaðarprestakalli færist í Borgarfjarðarprestakall | |
5 | Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023, með síðari breytingum Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi; Undirfells- og Þingeyrasóknir sameinist |