5 Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023 (Vesturbyggðarprestakall)
67. kirkjuþing 2025-2026 – 5. mál
Starfsreglur
um breytingar á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023.
1. gr.
Í stað orðsins “Patreksfjarðarprestakall” í 8. gr. starfsreglnanna komi: Vesturbyggðarprestakall
2. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021 öðlast gildi við birtingu.
Samþykkt á kirkjuþingi 28. október 2025 í einni umræðu og birt á opnum vef kirkjunnar 1. nóvember 2025.
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings.
Þskj. 5a
Tillaga
að breytingum á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 47/2022-2023.
Flm. Hildur Inga Rúnarsdóttir, Magnús Erlingsson og Ólafur Gestur Rafnsson.
1. gr.
Í stað orðsins “Patreksfjarðarprestakall” í 8. gr. starfsreglnanna komi: Vesturbyggðarprestakall
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021,
öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Lagt er til að kirkjuþing 2025 - 2026 samþykki að breyta nafni Patreksfjarðarprestakalls þannig að það heiti eftirleiðis Vesturbyggðarprestakall.
Þegar Patreksfjarðarprestakall var sameinað Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli, lögðu kirkjuyfirvöld til að hið nýja sameinaða prestakall myndi heita Patreksfjarðarprestakall. Ekki var ánægja í öllum 8 sóknum prestakallsins með þessa nafngift. Hefur málið komið til umræðu á héraðsfundum.
Fyrir héraðsfund Vestfjarðaprófastsdæmis 2025, sem haldin var á Bíldudal 7. september síðastliðinn, ritaði prófastur öllum sóknarnefndum bréf þar sem hann kynnti þá hugmynd að nafni prestakallsins yrði breytt í Vesturbyggðarprestakall. Var slík tillaga borin upp á héraðsfundinum og samþykkt einróma.