29 Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022
66. kirkjuþing 2024 - 2025 29. mál
Þskj. 29a
T I L L A G A
að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022
Flm. Guðni Már Harðarson, Bryndís Malla Elídóttir, Margrét Eggertsdóttir.
1. gr.
Eftirfarandi mgr. bætist við 5. gr. starfsreglnanna:
Kirkjuþingsfulltrúi getur að hámarki setið þrjú kjörtímabil samfellt sem aðalmaður.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Kirkjuþing hefur á undanförnum árum samþykkt veigamiklar breytingar á stjórnskipan kirkjunnar. Kirkjuþing fer samkvæmt lögum með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar þar með talið fjárstjórnarvald. Í ljósi þess mikla valds sem kirkjuþing hefur telur flutningsfólk rétt að kirkjuþing setji hámarkstíma á kjörgengi til kirkjuþings. Lagt er til að kirkjuþingsfulltrúar sitji ekki lengur en þrjú kjörtímabil samfellt sem aðalmenn. Með því er tryggt að eðlileg endurnýjun verði með reglubundnum hætti á þinginu sem stuðlar að heilbrigðri valddreifingu. Tillagan leggur einnig grunn að því að kirkjufólk sem hefur ákveðna sýn fyrir kirkjuna og brennur fyrir málefnum hennar komi hugsjónum sínum á framfæri innan ákveðins tíma. Minnt er á að biskupar eru kjörnir til sex ára í senn og rætt hefur verið um að setja hámarkstíma á kjörtímabil biskupa. Flutningsfólk telur að með samþykkt þessarar tillögu sé kirkjuþing að ganga á undan með góðu fordæmi og hvetji fordæmi og hvetji um leið til þess að fleiri komi að störfum og ákvörðunum kirkjuþings.
Tillagan felur ekki í sér kostnað.
Þskj. 29b
Nefndarálit
við tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022.
Frá löggjafarnefnd.
Frsm: Anna Guðrún Sigurvinsdóttir.
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið og leggur til að tillagan á þingskjali 29a fái ekki framgang.
Bryndís Malla Elídóttir, Elínborg Sturludóttir og Kristrún Heimisdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Jóhanna Gísladóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Reykjavík, 23. ágúst 2025.
Löggjafarnefnd.
Anna Guðrún Sigurvinsdóttir
Konráð Gylfason, varaform.
Magnús Erlingsson
Óskar Magnússon
Stefán Magnússon.