27 Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022
66. kirkjuþing 2024 - 2025 27. mál
Þskj. 27a
T I L L A G A
að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022.
Flm. Guðni Már Harðarson, Hilda María Sigurðardóttir, Þuríður Björg W. Árnadóttir.
1. gr.
1. gr. starfsreglnanna orðast svo:
Kosning til kirkjuþings fer fram á fjögurra ára fresti.
Á kirkjuþingi eiga sæti 31 fulltrúi, 12 vígðir, 17 leikmenn og 2 fulltrúar unga fólksins.
2. gr.
Við 2. gr. starfsreglnanna bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Kirkjuþing unga fólksins kýs auk þess tvo fulltrúa og tvo til vara.
3. gr.
Ný 5. gr. orðast svo:
Kirkjuþing unga fólksins kýs tvo fulltrúa og tvo til vara, til fjögurra ára í senn. Fulltrúar skulu vera á aldrinum 18 – 35 ára og vera óvígðir og skulu hafa meðmæli sóknarnefndar.
Þau sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu tilkynna verkefnastjóra framboð sitt. Þau skulu kynna það í upphafi kirkjuþings unga fólksins á því almanaksári sem er á undan því ári sem kosið er til kirkjuþings. Kirkjuþing unga fólksins þarf að vera löglega boðað og ályktunarfært samkvæmt starfsreglum þegar kosning fer fram.
4. gr.
5. gr. verður 6 gr., 6 gr. verður 7. gr. og svo framvegis.
5. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, öðlast gildi 1. janúar 2025.
Greinargerð.
Kirkjuþing hefur ítrekað á seinustu sjö árum ályktað um að auka hlut ungs fólks innan stjórnsýslu kirkjunnar og samþykkt voru fyrir sjö árum eftirfarandi markmið: "miða skal við að ungt fólk, þ.e. á aldrinum 18-30 ára sé að jafnaði minnst 20% þeirra innan hverrar skipulagsheildar þjóðkirkjunnar sem hverju sinni taka bindandi ákvarðanir, semja áætlanir, skipuleggja starfsemi og hafa kosningarétt“.
Ekkert hefur verið gert til þess að tryggja að hægt sé að framfylgja þessum ályktunum. Árið 2018 var biskupi Íslands, forsætisnefnd og kirkjuráði falið að leggja fram tillögur að breytingum á starfsreglum til þess að ná fram þessum markmiðum. Enn og aftur sáu kirkjuþingsfulltrúar sig knúna til þess að minna á þessar ályktanir og samþykktir á þinginu 2023-204 þar sem engu hafði verið áorkað.
Forsætisnefnd kirkjuþings skipaði á vormánuðum þriggja manna nefnd til að fylgja eftir framangreindum ályktunum og leggja fram tillögur með greinargerð á kirkjuþingi 2024 - 2025. Í nefndina voru skipuð eftirfarandi kirkjuþingsfulltrúar: Berglind Hönnudóttir, Guðni Már Harðarson, sem verði formaður og Þuríður Björg Árnadóttir Wiium.
Ofangreindar tillögur eru niðurstöður vinnu þessarar nefndar. Nefndin leggur til að kirkjuþing unga fólksins, sem hingað til hefur kosið sér einn áheyrnarfulltrúa á þingið, fái að kjósa tvo fullgilda fulltrúa með kosningarétt.
Ljóst er að miðað við hlutfallið tuttugu hundraðshlutar sem ályktanir gera ráð fyrir, eru tveir fulltrúar frá kirkjuþingi unga fólksins ekki nóg til að mæta þessum kvóta. Nefndin telur þó nauðsynlegt að gera breytingar í litlum skrefum sem miða að því að ná þessu fram. Tveir fulltrúar með kosningarétt er mikilvæg breyting sem færir ungu fólki kosningarétt og fulla þátttöku á þinginu.
Á sama tíma hvetur nefndin til þess að allir kosningabærir menn hafi þessar ályktanir í huga þegar kosið verður til kirkjuþings næst. Þá hvetur nefndin ungt fólk til þess að gefa kost á sér til setu á kirkjuþingi því án þess er ekki hægt að ná fram þessum markmiðum.
Lagt er til að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2025.
Aukinn kostnaður sem fylgir málinu er þingfararkaup og mögulegur ferðakostnaður
Þskj. 27b
Nefndarálit
við tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 8/2021-2022.
Frá löggjafarnefnd.
Frsm: Magnús Erlingsson.
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið og leggur til að tillagan á þingskjali 27a fái ekki framgang.
Löggjafarnefnd minnir á samþykkt lúterska heimssambandsins um þátttöku ungs fólk í nefndum og ráðum kirkjunnar og treystir því að ungt fólk verði sérstaklega hvatt til þess að gefa kost á sér til setu á kirkjuþingi.
Jóhanna Gísladóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Reykjavík, 23. ágúst 2025.
Löggjafarnefnd.
Anna Guðrún Sigurvinsdóttir.
Bryndís Malla Elídóttir, form.
Elínborg Sturludóttir.
Konráð Gylfason, varaform.
Kristrún Heimisdóttir.
Magnús Erlingsson.
Óskar Magnússon.
Stefán Magnússon.