32 Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um aðgerðateymi og úrskurðarnefnd

67. kirkjuþing 2025-2026 - 32. mál

1. gr.

Starfsreglur um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023, falla brott frá og með 1. apríl 2026.

  1. gr. - 4. gr. upphaflegu tillögunnar á þskj. 34a falla þar með sjálfkrafa brott.

Starfsreglur um breytingar á starfsreglum um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar nr. 52/2022-2023.

5. gr.

1. gr. orðast svo:

Markmið starfsreglna þessara er að tryggja að fagleg úrræði séu til staðar ef upp koma atvik er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi innan þjóðkirkjunnar.

6. gr.

Í 2. mgr. 2. gr. starfsreglnanna falla brott orðin „ámælisverða eða refsiverða háttsemi“

7. gr.

3. gr. orðist svo:

Hverjum þeim sem telur starfsmann þjóðkirkjunnar hafa sýnt sér hegðun sem samræmist ofangreindu, þ.e. einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi, getur leitað til mannauðsstjóra Þjóðkirkjunnar, sem leitar leiða til að vinna málið innan kirkjunnar og metur hvort mögulegt sé að leita sátta. Mannauðsstjóri metur síðan hvort og hvenær sé viðeigandi að vísa málinu til umföllunar hjá aðgerðateymi.

Varði umkvörtunin yfirmenn stofnana þjóðkirkjunnar er málshefjanda þó heimilt að leita beint til aðgerðateymis, sem upplýsir mannauðsstjóra um að kvörtun hafi borist.

Hverjum þeim sem starfar fyrir þjóðkirkjuna og öðlast vitneskju um ætlað kynferðisbrot eða annað ofbeldi gegn barni er skylt samkvæmt lögum að beina slíku til barnaverndaryfirvalda og/eða lögreglu.

8. gr.

7. gr. breytist eftirfarandi:

a. 2. tölul. fellur brott.

b. númeraröð breytist samsvarandi.

9. gr.

8. gr. breytist eftirfarandi:

a. 6. mgr. fellur brott.

b. Ný lokamálsgrein bætist við ákvæðið og orðast svo:

Dragist málsmeðferð úr hófi, vari lengur en í 3 mánuði, ber teyminu að gera mannauðsstjóra kirkjunnar viðvart, sem ásamt formanni teymisins leggur mat á hvernig hraða megi afgreiðslu málsins.

10. gr.

Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021 öðlast gildi við birtingu.

Samþykkt á kirkjuþingi 22. mars 2026 og birt á opnum vef kirkjunnar 23. mars 2026

Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings

Þskj. 32a

T I L L A G A

að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023 og um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar, nr. 52/2022-2023.

Flm: Steindór R. Haraldsson

Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023.

1. gr.

1. gr. orðist svo:

Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar skal úrskurða í málum vegna ágreinings um ákvarðanir eða verklag við ákvarðanatöku á kirkjulegum vettvangi og skera úr um hvort ákvarðanir og verklag sé í samræmi við lög og starfsreglur.

Úrskurðarnefnd fjallar ekki um málefni sem varða ráðningar eða starfslok starfsfólks kirkjunnar eða helgisiði hennar.

Úrskurðarnefndin er sjálfstæð í störfum sínum.

2. gr.

2. gr. orðist svo:

Aðilar máls og þeir sem lögvarðra hagsmuna eiga að gæta geta borið mál undir úrskurðarnefnd, svo sem kirkjustjórnin (forseti kirkjuþings, biskup Íslands, stjórn Þjóðkirkjunnar, sóknarnefndir), einstakir starfsmenn kirkjunnar og aðrir sem starfa innan kirkjunnar.

3. gr.

3. mgr. 11. gr. orðist svo:

Þegar úrskurðarnefnd hefur lokið samningu úrskurðar síns skal hún senda hann til málsaðila. Úrskurðir nefndarinnar sendist einnig til Þjóðkirkjunnar.

4. gr.

12. gr. starfsreglnanna falli brott.

Starfsreglur um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar nr. 52/2022-2023.

5. gr.

1. gr. orðast svo:

Markmið starfsreglna þessara er að tryggja að fagleg úrræði séu til staðar ef upp koma atvik er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi innan þjóðkirkjunnar.

6. gr.

Í 2. mgr. 2. gr. starfsreglnanna falla brott orðin „ámælisverða eða refsiverða háttsemi“

7. gr.

3. gr. orðist svo:

Hverjum þeim sem telur starfsmann þjóðkirkjunnar hafa sýnt sér hegðun sem samræmist ofangreindu, þ.e. einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi, getur leitað til mannauðsstjóra Þjóðkirkjunnar, sem leitar leiða til að vinna málið innan kirkjunnar og metur hvort mögulegt sé að leita sátta. Mannauðsstjóri metur síðan hvort og hvenær sé viðeigandi að vísa málinu til umföllunar hjá aðgerðateymi.

Varði umkvörtunin yfirmenn stofnana þjóðkirkjunnar er málshefjanda þó heimilt að leita beint til aðgerðateymis, sem upplýsir mannauðsstjóra um að kvörtun hafi borist.

Hverjum þeim sem starfar fyrir þjóðkirkjuna og öðlast vitneskju um ætlað kynferðisbrot eða annað ofbeldi gegn barni er skylt samkvæmt lögum að beina slíku til barnaverndaryfirvalda og/eða lögreglu.

8. gr.

7. gr. breytist eftirfarandi:

a. 2. tölul. fellur brott.

b. númeraröð breytist samsvarandi.

9. gr.

8. gr. breytist eftirfarandi:

a. 6. mgr. fellur brott.

b. Ný lokamálsgrein bætist við ákvæðið og orðast svo:

Dragist málsmeðferð úr hófi, vari lengur en í 3 mánuði, ber teyminu að gera mannauðsstjóra kirkjunnar viðvart, sem ásamt formanni teymisins leggur mat á hvernig hraða megi afgreiðslu málsins.

10. gr.

Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021 öðlast gildi við birtingu.

Greinargerð.

Tilgangur starfsreglnanna sem hér er fjallað um hlýtur að vera að stuðla að faglegri og óháðri meðferð á ágreiningsmálum og kvörtunum sem koma upp innan kirkjunnar. Ekki verði annað séð en þetta fyrirkomulag hafi reynst vel og að áðurnefndum tilgangi hafi verið náð. Ýmislegt megi þó skoða og huga að breytingum á reglum og verklagi.

I. Skýringar við tillögu um breytingar á úrskurðarnefnd

Starfshópurinn leggur til breytingar á 1. gr. starfsreglnanna sem fjallar um hlutverk nefndarinnar. Hlutverkinu verði breytt þannig að nefndin fjalli um ágreining um ákvarðanir eða verklag við ákvarðanatöku á kirkjulegum vettvangi og sker úr um hvort ákvarðanir og verklag sé í samræmi við lög og reglur. Lagt er til að úrskurðarnefndin fjalli ekki um agabrot á kirkjulegum vettvangi og því falli 2. mgr. 1. gr. brott. Þá er lagt er til að 12. gr. starfsreglnanna falli brott þar sem agabrot heyra undir biskup eða aðra yfirmenn eftir því sem við á. Ákvæði þar að lútandi gætu fremur átt heima í starfsreglum um aðgerðateymi.

II.Skýringar við breytingar á starfsreglum um aðgerðarteymið.

Talið er rétt að aðgerðarteymið fjalli einungis um mál sem falla undir skilgreiningu á EKKO málum, sbr. rgj. 1009/2015 og er því lagt til að orðin „ámælisvert og refsivert „ í réttu falli, falli brott þar sem þau koma fyrir í starfsreglunum.

Lögð er til breyting á 3. gr. starfsreglnanna sem takmarkar aðgengi að aðgerðarteyminu sem felast í því að kvartanir berist fyrst til mannauðssviðs skrifstofu Þjóðkirkjunnar, nema ef kvartanir varða yfirmenn stofnana þjóðkirkjunnar þá megi leita beint til aðgerðarteymis.

Lagt er til að 2. tl. 7. gr. falli brott þar sem ekki verður séð að aðgerðarteymið hafi vald til að taka ákvarðanir um þau atriði sem lýst er í ákvæðinu.

Þá er lagt að fellt verði brot ákvæði 8. gr. um samskipti við fjölmiðla enda er lögð áhersla á að gæta trúnaðar við meðferð mála hjá aðgerðarteyminu. Einnig er lögð til ný lokamálsgrein 8. gr. þar sem lögð er áhersla á að málsmeðferð sé hraðað eins og kostur er.

Þskj. 32b

Breytingartillaga

við tillögu að breytingum á starfsreglum um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023 og um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar, nr. 52/2022-2023.

Flm. Arna Grétarsdóttir.

1. gr.

Starfsreglur um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023, falla brott frá og með 1. apríl 2026.

Þskj. 32c

Nefndarálit

við tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023 og um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar, nr. 52/2022-2023.

Flutt af löggjafarnefnd.

Frsm. Anna Guðrún Sigurvinsdóttir.

Löggjafarnefnd hefur fjallað um málin á þingskjölum 31a og 32a og leggur til að þau verði sameinuð.

Nefndin leggur til eftirfarandi:

a. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar nr. 36/2022-2023

Löggjafarnefnd telur mikilvægt að fundinn verði skilvirkur farvegur fyrir ágreiningsmál á kirkjulegum vettvangi og að nýtt kirkjuþing skoði með hvaða hætti þeim málum verði best fyrir komið. Í ljósi þess leggur nefndin til að breytingartillaga á þingskjali 32b verði samþykkt.

b. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar, nr. 52/2022-2023.

Löggjafarnefnd leggur til að breytingartillagan á þingskjali 32a verði samþykkt.

Reykjavík, 22. mars 2026.

Löggjafarnefnd.

Anna Guðrún Sigurvinsdóttir

Bryndís Malla Elídóttir, form.

Jóhanna Gísladóttir

Konráð Gylfason, varaform.

Magnús Erlingsson

Sólveig Þórðardóttir, varam. Óskars Magnússonar

Stefán Magnússon.

Elínborg Sturludóttir og Kristrún Heimisdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.