34 Starfsreglur um breytingu á ýmsum starfsreglum (vígslubiskupsembætti)
67. kirkjuþing 2025 - 2026 - 34. mál
Starfsreglur um breytingu á ýmsum starfsreglum (vígslubiskupar)
Starfsreglur um biskupafund nr. 34/2022-2023.
1. gr.
Orðin „og vígslubiskupa“ í 2. mgr. 4. gr. starfsreglnanna falla brott.
Starfsreglur um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 43/2021-2022.
2. gr.
Orðið „vígslubiskupi“ í 1. tl. 1. mgr. 9. gr. fellur brott.
Starfsreglur um kjaranefnd Þjóðkirkjunnar nr. 12/2021-2022.
3. gr.
Orðin „og vígslubiskupa“ í 4. tl. 2. gr. starfsreglnanna falla brott.
Starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022
4. gr.
Ákvæði til bráðabirgða
Þegar vígslubiskupsembætti losnar skal fresta framkvæmd kosninga samkvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022 þar til kirkjuþing hefur samþykkt nýjar reglur þar um eða í síðasta lagi til 1. apríl 2027.
Starfsreglur um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar nr. 52/2022-2023.
5. gr.
Orðið „vígslubiskupa“ í 12. mgr. 7. gr. fellur brott.
Starfsreglur um presta nr. 6/2023-2024.
6. gr.
3. málsl. 8. gr. fellur brott. Núverandi 4. málsl. verður 3. málsl.
Starfsreglur um prófasta nr. 7/2023-2024.
7. gr.
Í stað orðanna „skal skila vígslubiskupi“ í 2. málsl. 11. gr. komi: skilar biskupi
Starfsreglur um vígslubiskupa nr. 8/2024 - 2025.
8. gr.
2. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Vígslubiskupar skulu sitja í Skálholti og Hólum og þjóna sem prestar í prestakallinu á þeim kjörum sem um prestsþjónustuna gilda.
Nú lætur vígslubiskup af prestsembætti eða hlýtur prestsstarf utan umdæmis síns, skal þá kjósa nýjan vígslubiskup. Biskup Íslands setur vígslubiskupum erindisbréf. Þar skal m.a. tekið fram að vígslubiskupar hafi sérstakar þjónustuskyldur við staðina, Hóla og Skálholt.
9. gr.
3. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Um kjör vígslubiskupa fer samkvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa. Nái kjörtímabil vígslubiskups fram yfir 70 ára aldur lætur vígslubiskup af þjónustu sinni frá og með næstu mánaðamótum eftir að 70 ára aldri er náð.
10. gr.
4. gr. starfsreglnanna falli brott.
11. gr.
6. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Vígslubiskupar eru staðgenglar biskups eftir því sem við getur átt, svo sem vegna lengri fjarveru eða ef biskup víkur sæti.
Vígslubiskupar sitja biskupafund skv. starfsreglum um biskupafund og sinna verkefnum samkvæmt ákvörðun biskupafundar.
Vígslubiskupar vígja presta, djákna, kirkjur og kapellur hvor í sínu umdæmi eftir nánari ákvörðun biskups og sinna öðrum þeim verkefnum sem biskup felur þeim.
Ákvæði til bráðabirgða
Í stað núgildandi ákvæðis til bráðabirgða I komi ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Núverandi vígslubiskupar skulu áfram gegna skyldum vígslubiskupa samkvæmt starfsreglum um vígslubiskupa nr. 33/2022-2023, til 70 ára aldurs.
12. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, öðlast gildi við birtingu.
Samþykkt á kirkjuþingi 22. mars 2026 og birt á opnum vef kirkjunnar 23. mars 2026.
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings.
Þskj. 34a
T I L L A G A
að starfsreglum um breytingu á ýmsum starfsreglum (vígslubiskupar)
Flm. Steindór R. Haraldsson
Starfsreglur um biskupafund nr. 34/2022-2023.
1. gr.
Orðin „og vígslubiskupa“ í 2. mgr. 4. gr. starfsreglnanna falla brott.
Starfsreglur um fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 8/2022-2023.
2. gr.
2. mgr. 7. gr. starfsreglnanna fellur brott.
Starfsreglur um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 43/2021-2022.
3. gr.
2. mgr. 3. gr. starfsreglnanna fellur brott.
Orðið „vígslubiskupi“ í 1. tl. 1. mgr. fellur brott.
Starfsreglur um kjaranefnd Þjóðkirkjunnar nr. 12/2021-2022.
4. gr.
Orðin „og vígslubiskupa“ í 4. tl. 2. gr. starfsreglnanna falla brott.
Starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða
Þegar vígslubiskupsembætti losnar skal fresta framkvæmd kosninga samkvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022 þar til kirkjuþing hefur samþykkt nýjar reglur þar um eða í síðasta lagi til 1. apríl 2027.
Starfsreglur um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar nr. 52/2022-2023.
6. gr.
Orðið „vígslubiskupa“ í 12. mgr. 7. gr. fellur brott.
Starfsreglur um presta nr. 6/2023-2024.
7. gr.
3. málsl. 8. gr. fellur brott. Núverandi 4. málsl. verður 3. málsl.
Starfsreglur um prófasta nr. 7/2023-2024.
8. gr.
Í stað orðanna „skal skila vígslubiskupi“ í 2. málsl. 11. gr. komi: skilar biskupi
Starfsreglur um vígslubiskupa nr. 8/2024 - 2025.
9. gr.
2. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Vígslubiskupar gegna áfram prestsþjónustu þeirri sem þeir hafa verið kallaðir til og á þeim kjörum sem um hana gilda. Láti vígslubiskup af prestsembætti eða hljóti prestsstarf utan umdæmis síns, skal kjósa nýjan vígslubiskup.
Biskup Íslands setur vígslubiskupum erindisbréf. Þar skal m.a. tekið fram að vígslubiskupar hafi sérstakar þjónustuskyldur við staðina, Hóla og Skálholt.
10. gr.
3. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Um kjör vígslubiskupa fer samkvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa. Nái kjörtímabil vígslubiskups fram yfir 70 ára aldur lætur vígslubiskup af þjónustu sinni frá og með næstu mánaðamótum eftir að 70 ára aldri er náð.
11. gr.
4. og 5. gr. starfsreglnanna falli brott.
12. gr.
6. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Vígslubiskupar eru staðgenglar biskups eftir því sem við getur átt, svo sem vegna lengri fjarveru eða ef biskup víkur sæti.
Vígslubiskupar sitja biskupafund skv. starfsreglum um biskupafund og sinna verkefnum samkvæmt ákvörðun biskupafundar.
Vígslubiskupar vígja presta, djákna, kirkjur og kapellur hvor í sínu umdæmi eftir nánari ákvörðun biskups og sinna öðrum þeim verkefnum sem biskup felur þeim.
Ákvæði til bráðabirgða
Í stað núgildandi ákvæðis til bráðabirgða I komi ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Núverandi vígslubiskupar skulu áfram gegna skyldum vígslubiskupa samkvæmt starfsreglum um vígslubiskupa nr. 33/2022-2023, til 70 ára aldurs.
13. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 8. gr. laga um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Kirkjuþing samþykkti þann 27. október 2025 svofellda ályktun:
Kirkjuþing 2025-2026 samþykkir að skipa starfshóp þriggja manna sem móti nánari útfærslu þjónustu vígslubiskupa á grundvelli nýrra starfsreglna um vígslubiskupa nr. 8/2024 - 2025.
Starfshópurinn undirbúi innleiðingu og framkvæmd starfsreglnanna.
Starfshópurinn skili forsætisnefnd greinargerð vegna verkefnisins fyrir 1. febrúar 2026.
Starfshópurinn hefur unnið greinargerð samkvæmt framanskráðu og jafnframt unnið tillögur að breytingum á starfsreglum um vígslubiskupa og skilað forsætisnefnd. Skal vísað til greinargerðarinnar, og fylgiskjala með henni, mál nr. 33 á 67. kirkjuþingi 2025 - 2026, hvað varðar nánari umfjöllun og rökstuðning um þá útfærslu þjónustu vígslubiskupa, á grundvelli nýrra starfsreglna um vígslubiskupa. Hópurinn telur auk þess, eðli málsins samkvæmt, rétt að breyta ýmsum starfsreglum til að samræmis sé gætt við þær nýju starfsreglur um vígslubiskupa sem greinir í framangreindri þingsályktun. Í því felst að fella brott ákvæði um aðkomu og hlutverk vígslubiskupa í öðrum starfsreglum þar sem við á.
Í kjölfar þeirra breytinga sem lagðar eru til á starfsreglum um vígslubiskupa er rétt að fram fari endurskoðun á starfsreglum um kosningu vígslubiskupa þar sem litið er til þess að ekki er lengur um sjálfstæð embætti að ræða heldur viðbótarþjónustu. Starfshópurinn leggur til að samþykkt verði bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að kosningu vígslubiskupa verði frestað ef til þess kemur að núverandi vígslubiskupar láti af störfum áður en kirkjuþing samþykkir breytingar á kosningareglunum í samræmi við breytta skipan.
Ekki þykir þörf sérstakra skýringa við þau ákvæði tillögunnar sem eingöngu fela í sér brottfall einstakra ákvæða tillögunnar.
Lagt er til að starfsreglur þessar öðlist gildi við birtingu þeiirra.
Þskj. 34b
Nefndarálit
við greinargerð um mótun skipulags þjónustu vígslubiskupa (33. mál) og tillögu að starfsreglum um breytingu á ýmsum starfsreglum (34. mál).
Frá löggjafarnefnd.
Flm. Jóhanna Gísladóttir
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málin á þingskjölum 33a og 34a. Málunum var einnig vísað til allsherjarnefndar og hafa nefndirnar komist að sameiginlegri niðurstöðu um afgreiðslu málanna.
Lagt er til að málin verði sameinuð og að breytingartillagan á þingskjali 34a verði samþykkt með eftirfarandi
b r e y t i n g a r t i l l ö g u :
Starfsreglur um fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 8/2022-2023.
1. gr.
2. gr. tillögunnar fellur brott.
Áfram verði í starfsreglunum eftirfarandi ákvæði (2. mgr. 7. gr. starfsreglnanna):
Lagðir skulu til embættisbústaðir fyrir vígslubiskupa í umdæmum hvors um sig, annars vegar á Hólum og hins vegar í Skálholti, nema um annað sé samið.
Starfsreglur um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 43/2021-2022.
2.
Fyrri liður 3. gr. tillögunnar falli brott.
Áfram verði í starfsreglunum eftirfarandi ákvæði: Vígslubiskupi umdæmisins skal boðið að sitja héraðsfund með málfrelsi og tillögurétt.
Starfsreglur um vígslubiskupa nr. 8/2024 - 2025.
3. gr.
9. gr. tillögunnar breytist og orðast svo:
a. 2. gr. starfsreglnanna.
Vígslubiskupar skulu sitja í Skálholti og Hólum og þjóna sem prestar í prestakallinu á þeim kjörum sem um prestsþjónustuna gilda.
Nú lætur vígslubiskup af prestsembætti eða hlýtur prestsstarf utan umdæmis síns, skal þá kjósa nýjan vígslubiskup. Biskup Íslands setur vígslubiskupum erindisbréf. Þar skal m.a. tekið fram að vígslubiskupar hafi sérstakar þjónustuskyldur við staðina, Hóla og Skálholt.
b. 11. gr. tillögunnar breytist eftirfarandi: Í stað orðanna „4. og 5. gr. starfsreglanna falli brott“ kemur: 4. gr. starfsreglnanna falli brott.
Reykjavík, 21. mars 2026.
Allsherjarnefnd.
Auður Thorberg Jónasdóttir, form.
Axel Árnason Njarðvík, varaform.
Áslaug Kristjánsdóttir
Benjamín Hrafn Böðvarsson
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Ríkharður Ibsen
Rúnar Vilhjálmsson
Stefán Már Gunnlaugsson
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir.
Löggjafarnefnd.
Anna Guðrún Sigurvinsdóttir
Bryndís Malla Elídóttir, form.
Elínborg Sturludóttir
Jóhanna Gísladóttir
Konráð Gylfason, varaform.
Kristrún Heimisdóttir
Magnús Erlingsson
Sólveig Þórðardóttir, varam. Óskars Magnússonar
Stefán Magnússon.